hætt með þetta bloggdrasl...
hugsanir mínar fyrir sjálfa mig... væri öðruvísi ef ég hefði frá
einhverju fræðilega merkilegu að segja en þar sem ég lifi jú
reyndar mjög spennandi og tilburðarmiklu lífi sem þið fáið bara
ekkert að vita um... þá ætla ég bara að leyfa ykkur að búa sjálf
til sögur um mig (sem reyndar sumir eru afskaplega duglegir við)...
og ef þið viljið e-h af mér vita, just give me a call...Later
hæ
lélegur bloggari. En ég er nýjasti siglfirðurinn og líkar það mjög
vel :) Er búin að búa hérna í 12 daga núna og njóta þess að vera í
jólafríi. Áður en ég fór var haldin kveðjustund fyrir mig, og fóru
ég, Sandra, Arna og Halla í keilu þar sem ég afhjúpaði mína glötuðu
keiluhæfileika. Og eftir það fórum við út að borða sem var æði Ruby
tuesday, bestu BBQ rif í bænum. Þar slóst Elín við í hópinn. Og þar
á eftir var haldið á hressó þar sem við fórum í kappdrykkju á
orkudrykkjum og hef ég sjaldan séð eins mikið af orkudrykkjum saman
komna og var útkoman eftir því. Svo var haldið á cozý þar sem var
lessast og dansað fram eftir öllu. Gisti ég svo hjá Söndru og lagði
af stað snemma næsta morgun á mínar nýju heimaslóðir. Núna er ég að
bíða í óvissu um það hvort ég komist suður á morgun vegna þess að
holtavörðuheiðin er lokuð þessa stundina og veit ekki hvenær hún
verður opnuð. Og er Birgitta held ég að vona að hún verði bara
ekkert opnuð svo ég verði hér á Sigló um jólin :) En þar sem Edda
systir mín verður ekki ánægð með það þá er ég nú að vona að það
verði fært annað hvort á morgun eða hinn. En ef ég á að vera alveg
hreinskilin þá langar mér nú alvega að vera bara hér um jólin sko,
sorry Edda ef þú lest þetta ;) En við sjáum til, held ykkur í
spennunni þangað til og læt vita, ætli ég reyni ekki að vera
duglegri að blogga líka.Alltaf e-ð rugl sem ég get ælt útúr mér
hérna. Svo er líka svo gaman hjá mér og Birgittu og við nánast
leiðindanámskeið í líkamsbeitingu...
ekkert að hlusta. Anyways þá styttist í það að ég flytji norður, og
hlakka ég ekkert smá til. Er farin að þola illa þessa fjarlægð frá
Birgittu. Var fyrir norðan um síðustu helgi og fórum við í bió á Ak
og svo í leikhús á sigló. Leikritið hét "láttu ekki deigan síga
Guðmundur" og var mjög skemmtilegt. Sérstaklega eitt atriði sem
Danni (maður frænku Birgittu) söng í. Það var atriði úr Rocky
horror picture show, og það var heavy flott hjá honum. Fer ég
norður aftur um næstu helgi. Verðum á Ak, og förum kannski til
sigló, fer eftir veðri. Það er svo heavy stutt eftir af skólanum að
marr er varla að átta sig á því. Það eru bara nokkur verkefni eftir
og svo vonandi bara 1 próf ,siðfræðiprófið, slepp vonandi við
sálfræðiprófið, kemst að því á mánudag. Nenni ekki meir í bili,
ok þá
ekki áskoranir. Gaman að heyra í þér hér Mæja mín ;) En er á
Akureyri ákkúrat núna, Birgitta í skólanum og er bara að bíða eftir
að hún verði búin. Og ætti að vera að læra en er ekki alveg að
nenna því. Keyrði á nýja bílnum norður og hann er æði!!! Gegt gott
að keyra hann og eyðir ekkert smá litlu. Við erum heavy ánægðar með
gripinn. En það sem á daga mína síðustu hefur drifið er söknuður,
er að hitta Birgittu núna eftir 2ja vikna bið og er það, það
lengsta sem hefur liðið á milli hittings hjá okkur. Og ætla ég að
vera hér þangað til á mánudag. Því svo líða aftur 2 vikur þangað
til við hittumst næst.Förum á Sigló á laugardaginn og verðum fram á
mánudag. Svo hef ég verið að kanna AA starfið hérna fyrir norðan og
vil nú ekkert vera að dissa neitt því ég hef ekki reynsluna af því
sjálf. En því miður hef ég bara heyrt miður gott. En það kemur í
ljós. En ég veit að ég verð að taka mig á og gera ráðstafanir, því
það eru miklar breytingar í nánd og ég þarf að gera ráð fyrir því.
Og hef ég nú þegar verið að upplifa bresti hjá mér. Eins og t.d.
Afbrýðisemi!!! sem er ljótur og leiðinlegur brestur. Og ég þarf að
passa mig að verða ekki óréttlát, en það er svo merkilegt með svona
tilfinningar að marr ræður stundum bara ekkert við þær. Þó svo að
marr viti að þær eigi ekki rétt á sér. Mun gera e-h í þessum málum.
Og nú nenni ég ekki að skrifa meir. En ég býst við kvitti takk. Og
Myspace
Endalaust mikið að skoða og ógilea gaman. En ákvað að láta aðeins
heyra í mér hérna því það eru greinilega fleiri en ég veit að lesa
þetta. Hvernig væri þá að kommenta fólk??? En allavega þá er mikið
að gera í skólanum eins og vanalega. Og er ég að finna fyrir smá
skólaleiða :/ En það er samt sem betur fer bara ca. 1 mánuður eftir
og ég lifi hann af. Af því þá fer ég NORÐUR jeiiii jeiiiii. Ohhhh
mig hlakkar svo til, og audda er aðalástæðan Birgitta. En ég hlakka
samt bara líka til að komast í burtu og prófa e-h nýtt. Hef aldrei
búið annars staðar en í Reykjavík og er bara rosa heppin finnst mér
að fá þetta tækifæri. En auðvitað á ég eftir að sakna
fjölskyldunnar minnar og vina, og mikið á ég eftir að
ein ;) En tilhugsunin um að vera svona nálægt Birgittu yfistígur
allt. Þetta er allt svo frábært og eins og þetta hafi átt að gerast
allt sem er að gerast núna. Átt að gerast nákvæmlega svona og
nákvæmlega núna. Ég trúi því allavega. En er orðin svo þreytt og
ætla að fara að lesa og svo að lúlla mér. Heyrumst bæów :*
Lay Low
mikið af góðri tónlist í heiminum. Og ennþá skemmtilegra að
uppgötva hana. Birgitta kom til mín um helgina, yndislegt að hitta
sem var að spila í Hljómalind. Hef reyndar bloggað um hana hérna
áður en þá var ég bara búnað heyra 1 lag. Birgitta keypti diskinn
hennar og hún er algjört æði. Og svo gaf ég Birgittu nýjasta
diskinn með The Knife þau eru gegt spes og mjöööög góð. Ég elska
tónlist. Og svo er meira update af flutningum, ég veit!!! Gegt
óákveðnar, en vegna óviðráðanlegra ástæðna þá ætlum við ekki að
fara búa saman á Akureyri strax. Engar vondar ástæður samt, ekki
örvænta. Birgitta ætlar að halda áfram í skólanum á Akureyri og búa
á vistinni, og ég ætla að búa á Sigló hjá tengdó. Mig hlakkar mikið
til og er þetta allt mjög spennandi. Verður mun auðveldara fyrir
okkur að hittast, get alltaf skroppið á Ak og svo munum við hittast
um HVERJA helgi sem er bara snilld. Og svo þegar kemur að því þá
förum við að leigja saman og verður það örugglega bara þegar við
flytjum saman í bæinn ;) Reykjavík meina ég. Helgin var yndisleg,
það er alltaf yndislegt að vera með Birgittu. Og hlæ ég alltaf
endalaust mikið. Hún er líka bara fyndnust í heimi. Með svo
ótrúlega góðan húmor. Svo getur hún líka bara leikið allt og gert
allskonar svipi og svoleiðis, þannig marr bara deyr úr hlátri. Og
af því það er alltaf svo gaman hjá okkur, þá verð ég alltaf pínu
sorgmædd þegar hún fer, og sakna hennar strax svo ógilea.mikið.
Meira blogg ;)
og eeeelska að fá komment á það. En það var meira óvænt í dag,
muniði ég elska óvænt ;) Átti að vera á skyndihjálpar-námskeiði um
helgina og Birgitta er að koma á eftir. En mér til mikillar ánægju
þá var því frestað og ég get eytt allri helginni með Birgittu
yayyyy. Það verður baaaara æði. Er komin með æði fyrir nýja My
Chemical Romance laginu, eina lagið sem ég hef heyrt af nýja
disknum þeirra "Welcome to the black parade". Og svo var ég lika að
tala við Smára vin minn sem er vinur Brian Shechter umboðsmanns
MCR, shit það er heavy kúl. Þeir eru svo mikil snilld, bæði
tónlistin og þeir sem tónlistarmenn, úff.... Annars er Iceland
airwaves í fullum gangi núna og heavy skrýtið að vera ekki að fara,
hef alltaf farið nema í fyrra því þá ég var ég svo nýorðin edrú og
treysti mér ekki. En langar alveg núna og treysti mér, en reyndar
langar mig helst bara á Kerrang kvöldið en það er svo asnalegt að
það er ekki selt inná einstaka viðburði. Heldur þarf marr að kaupa
sér bandið sem kostar rúmar 7 þúsund krónur. Fer kannski bara næst
og þá með Birgittu, og kannski verða MCR að spila þá (yeah right),
en það má alltaf halda í vonina ;) En heyrumst síðar píps elska
Hæ allir
það er æði að heyra í ykkur. En annars er allt gott að frétta nema
ég er búin að vera e-h lítil í mér síðustu 2 daga og hefur það
bitnað doldið á Birgittu minni :/ Þykir það heavy leiðinlegt en það
má bara ekkert segja við mig. Hef líka lítið talað við múttu
síðustu daga því það er svo merkilegt að henni tekst stundum að ná
mér allverulega upp. Þó að það hafi skánað;) En hún er samt algjör
perla sko ekki misskilja mig, veit ekki hvar ég stæði í lífinu ef
ég hefði ekki haft hana til að styðja mig síðustu árin í gegnum
allt. En ég hlýt að fara að jafna mig. Það er bara mikið mikið búið
að ganga á upp á síðkastið, en það stendur allt til bóta. Ég er
orðin svo spennt fyrir flutningunum að ég get ekki beðið eftir að
fara að pakka, fór útí Byko áðan og keypti pökkunarlímband. Og ætla
að byrja að pakka í næstu viku :) Jeijj. Og tók lika til í
geymslunni svo ég komi dóti þar fyrir sem ég tek ekki strax með mér
norður. Úff hvað verður gott að komast héðan. En ég er nú samt
ekkert alfarin, við Birgitta stefnum að því að búa saman í
Reykjavík, veit ekki alveg hvenær samt. Hey já svo er Birgitta min
að koma um helgina, bara svona alveg óvænt, ohhh ég elska óvænt ;)
Og ætlum við að hafa það bara heavy kósý, og við verðum bara 2. Það
hefur nebblega ekki oft verið þannig, það eru yfirleitt e-h í
kringum okkur sko. Svo þetta verður heavy næs. En allavega farin að
kl. 8 í fyrramálið, en langaði bara svo til að blogga smá. Anyways
þá er búið að vera mikið í gangi hjá mér uppá síðkastið og er ég
orðin rosalega þreytt. Þá sérstaklega andlega. En sem betur fer
stendur þetta allt til bóta og fer vonandi að róast um núna. Sry
þið sem vitið ekkert um hvað ég er að tala, og þið fáið ekkert að
vita hehe. En þið sem vitið þið skiljið mig ;) Ok það er samt allt
að verða brjálað í skólanum. Próf á morgun, og á svo að vera búnað
skila 7 bls. skýrslu fyrir miðvikud. í næstu viku sem ég er einu
sinni ekki byrjuð á. Og svo ritgerð í Siðfræði sem er að fara að
bresta á. En þegar þetta er búið þá er líka næstum allt komið sem
ég þarf að vinna yfir önnina, nema eitt próf í Sálfræði og svo
nokkur í tölvufræði sem eru skítlétt. Fór í svaka dæmi hjá
ráðgjafanum mínum í dag, hún setti mig í e-h svona djúpslökun með
dáleiðslu ívafi, og ég var bara allt í einu stödd í íbúðinni sem ég
bjó í þegar ég var lítil, heavy fríkað! En spennó samt, fæ að fara
oftar í svona hjá henni og er það bara spennandi. En reyndar verður
þetta kannski pínu erfitt líka þegar lengra dregur. En ég kem
sterkari einstaklingur út á eftir. Er mikið að fara að vinna í
mínum málum núna og er það bara gott. Og það besta er að ég er að
fara burt úr þessu umhverfi sem ég er í núna og hlakka rosa til.
Það að ég skuli vera að flytja burt frá Reykjavík er held ég það
besta sem ég er að gera fyrir mig ákkúrat núna. En plúsinn við
þetta allt saman og það lang lang besta er að ég fæ að vera með
ástinni í lífi mínu ALLTAF. Vá vitiði ég held að ég hafi aldrei
verið eins ástfanginn eins og ég er núna. Og þið sem hafið upplifað
þetta vitið hvað ég á við að þetta er besta tilfinning sem til er,
og ég veit að það eru góðir tímar framundan, og hlakka ég til að
njóta þeirra, með Birgittu. Heyrumst síðar, verð að læra núna. Lúv
ok update.....
ekki á akureyri í dag. Birgitta er pínu fúl af því við ætluðum á
tónleika. En mér er svo sem alveg sama. Mér líður ótrúlega vel
hérna. Og eins gott því ég er að fara að flytja hingað í desember,
svona ca. um miðjan des. Já Bryndís borgarbarn á sigló!!!! Verð hér
þangað til við Birgitta flytjum á akureyri eftir áramót. Og mig
hlakkar mikið til. Fæ að búa hjá bestu tengdaforeldrum í heimi, og
rúntinum í gær og gláptum svo á videó, og svo fórum við í dag og
annars eru bara mjög spennandi tímar fram undan. En verð að fara
núna að hafa ofan af fyrir Birgittu, hún er frekar pirruð yfir að
Erum komnar með bíl....
Ég fór nebblega á bílasöluna í gær og talaði við kallinn, Pabbi
Birgittu var sko búin að prófa að bjóða 470 í hann, hann var
upphaflega á 530. Það tilboð var samþykkt, en það er sko smá rispa
á hliðinni á honum sést varla. En útaf henni þá bað ég um að hann
yrði lækkaður meira og kallinn sagði bara já ummm....420!!! Og við
biðum ekki boðanna og skelltum okkur bara á hann, bílinn sko ekki
kallinn hehe ;) Bílalánið var samþykkt og tengdó gaf okkur
útborgunina, þau eru btw best í heimi elska þau og dýrka. Og nú
eigum við kærusturnar nýjan bíl yayyyy. Og svo eru kannski nýjar
fréttir af flutningum sem ég mun blogga um á morgun. Það er smá
uppfærsla í gangi á því sem ég skrifaði í gær. Verð í bandi. En
ætla að fara á nýja bílnum ;) útí bakarí og kaupa e-h gott handa
stelpunum(Birgittu og Díönu) þegar þær koma heim úr skólanum. Bæów.
Og þið sem kíkjið á síðuna endilega kvittiði líka. Alltaf gaman að
fá kvitt ;)
Omg.....
á Akureyri ákkúrat núna, kom í gær. Það er nebblega haustfrí í
skólanum í dag og á morgun og ég verð fyrir norðan þangað til á
sunnudag. Förum til sigló á föstudag og verðum fram á laugardag.
Verðum á akureyri á laugardag og förum á tónleika með Sign og
Nevolution yayyy. Ég var sko hérna síðustu helgi líka :) Eða á
Sigló, var að hitta tengdó í fyrsta skipti og það var æði. Allir
voru svo næs og ég á skemmtilegustu tengdafjölskyldu sem til er.Það
fleiri fréttir, ég er að fara að flytja norður eftir áramót. Eða
reyndar örugglega í Desember. Við Birgitta ætlum að fara að leigja
á akureyri og hún heldur áfram í skólanum og ég verð í fjarnámi.
Mig hlakkar heavy mikið til. Bæði að fá að vera alltaf með
yndislegu kærustunni minni og svo að komast aðeins í breytt
umhverfi. Þarf virkilega á því að halda eftir allt dramað sem búið
er að vera í gangi síðustu mánuði. Og það að ég hafi kynnst
Birgittu er bara það besta sem gerðist. Og greinilega það sem átti
að gerast. Þetta verður æði. Birgitta mín er bara í skólanum núna
og ég á að vera að læra undir próf en nenni því ómögulega :/ En
ætla að plata Birgittu að hjálpa mér að gera Myspace síðu, og svo
kannski að troða e-h myndum hérna inn. En allavega þá kveður
hamingjusamasta kona jarðríkis ykkur og fleiri fréttir seinna.
Hey there.....
gær gerði ég hið ómögulega, fór uppí rúm um 11 leytið. Las
Tipping the Velvet og er hreint út sagt æðisleg. Get varla hætt að
lesa þegar ég byrja. Anyways, klukkan er ca. 5 í tólf þegar ég
slekk ljósið og ætla að fara að sofa. Nei, nei, nei. Er ekki e-h
kófdrukknir einstaklingar að spila helv... óperu. Og þar sem við
Arna búum, þetta er svona 2ja hæða blokk sem er í ferning og
lokaður garður í miðjunni. Og ég komst að því í gærkvöldi að þegar
spiluð er tónlist hátt með opinn gluggan þá BERGMÁLAR í garðinum.
Ok ef þetta hefði verið e-h góð tónlist, en nei!!!! Ímyndið ykkur Ó
SÓLE MÍÓ bergmálandi í garðinum hjá ykkur AFTUR OG AFTUR OG AFTUR
OG AFTUR. Nei ég er ekki að ýkja ég hætti að telja þegar það var
komið uppí 7 skipti. Og ekki batnaði það þegar liðið sem btw kunni
ekki að syngja óperu fór að syngja með!!! En svo sem betur fer
hefur e-h kvartað eða e-h því um hálf-tvö þá loksins hættu þau að
spila ó sóle míó sem ég mun ekki getað hlustað á í nánustu framtíð
:/ og ég gat loksins sofnað. Þetta kennir mér bara að vera ekki að
reyna e-h að fara snemma að sofa. Þetta var mitt sign um að það sé
bara betra að vaka frameftir :) Er að fara til Siglufjarðar um
helgina að hitta tengdó í fyrsta skipti, haha fyndið að segja þetta
tengdó, en hlakka mikið til. En verð að viðurkenna að ég er pínu
stressuð líka. En ég veit að það verður mjög gaman ;) Erum við
kærusturnar búnar að vera rosa heppnar með hitting. Þó að það væri
á Akureyri og ég í Reykjavík þá hefur gengið ótrúlega vel að
verið saman þá höfum við hist mjög mikið ég farið 2 helgar til
hennar og hún komið 1 sinni til mín og svo erum við að hittast núna
um helgina. Bara æði. En sakna hennar samt alltaf ólýsanlega mikið
og er þetta stundum erfitt. En ástin yfirstígur allt og við getum
þetta alveg. Ætla að fara að lesa núna, sí ja bæów.
Jæja þá
ekki í rúmið fyrr en fyrsta lagi um 1 leytið, kemur stundum fyrir
að ég fari um 12 en síðustu vikur. Og þá sérstaklega eftir að ég
fékk mér ADSL-ið þá bara hangi ég endalaust í tölvunni. Það er líka
bara svo gaman. Anyways átti frábæra helgi, Birgitta mín kom til
mín á fimmtudag og var fram á sunnudag. Og það var æði að hafa hana
hjá mér, það var eiginlega bara best að hafa hana hjá mér, og
sorgin sem fylgdi kveðjustundinni var líka eftir því. Ég verð
alltaf mega sorgmædd svona fyrstu klst. eftir að við kveðjumst. Og
þá er líka gott að búa með bestustu vinkonu sinni sem huggar mig :/
Við fórum í heimsókn til Birkis bróður Birgittu og Thelmu kærustu
hans á fös og það var frábært að hitta þau. Og svo á laugardaginn
þá fórum við í heimsókn til Dísu og Nönu og það var líka alveg
frábært. Fengum einkatónleika hjá þeim og frábærar móttökur, þær
eru yndislegar og var gaman að hitta þær. Og svo eftir heimsóknina
þá var haldið á Broadway þar sem á móti sól og DILANA voru með
einhverja þá bestu tónleika sem ég hef farið á (fyrir utan
Metallica auðvitað). Það var æði ;) Var að vinna í kvöld, á
bókasafni Samtakanna 78 og það var EKKERT að gera frekar en fyrri
daginn. Það er eins og fólk viti ekki að þessi staður sé til. Það
eru nebblega mikið af góðum myndum sem hægt er að leigja og fullt
af skemmtilegum bókum þarna. Veit ekki hvort ég nenni að vera að
hanga þarna á kvöldin að gera ekki neitt :/ Ætla samt að gefa þessu
smá séns í viðbót. Ætlum við Arna (bestasta vinkona mín sem leigir
með mér) að fara að stússast á morgun. Ég ætla að fara í bílaleit
yayyy, og svo e-h meir ;) Það verður stuð, ætla ég að taka
myndavélina með og leyfa ykkur svo að sjá. Það gerist yfirleitt e-h
skemmtilegt þegar við Arna erum saman :) Og svo þarf ég bara að
biðja Birgittu mína (like usual) að hjálpa mér að setja myndir inn
ég hata hata hata...
fara i bílainnkaupaleiðangur í næstu viku. Er m.a.s búin að ákveða
hvernig bíl mig langar í, annaðhvort vw polo, golf eða toyota
yaris. Verð bara að treysta á gott peningakarma, og ekki kaupa
neitt rugl í nokkra mánuði. 7 mánuði to be exact. Af því þá hef ég
lokið náminu sem ég er í og fer að vinna við það sem ég er að læra
og verð þá með stabíla og góða innkomu ;) 7 mánuðir eru nú ekkert
svo mikið, ég hef lifað af verra. Believe me I HAVE :/ Anyways þá
er ég bara að deyja úr spenningi því að eftir nákvæmlega 2 og 1/2
tíma verður hún Birgitta mín komin til mín, yayyy yayyy og meira
yayyy. Og talandi um bílainnkaup, þar sem hún Birgitta mín á nú
heima næstum hinum megin á landinu þá borgar það sig nú frekar
mikið fyrir mig að fara að kaupa mér bíl. Þá getum við hist mikið
oftar ;) Sko þarna kom nú besta ástæðan til að kaupa mér bíl. Ekki
það að ég þurfi e-h ástæðu. Ég kaupi mér bara bíl ef mig langar í
bíl og hana nú! Live for the moment goddamnitt :) En ætla að fara
að sturta mig og gera mig reddý fyrir ástina mína. Hlakka mest til
að sjá þig Birgitta mín. Bæów evríboddý.